Psalms 41

1Til söngstjórans. Davíðssálmur. 2Sæll er sá er gefur gaum að bágstöddum, á mæðudeginum bjargar Drottinn honum. 3Drottinn varðveitir hann og lætur hann njóta lífs og sælu í landinu. Og eigi ofurselur þú hann græðgi óvina hans. 4Drottinn styður hann á sóttarsænginni, þegar hann er sjúkur, breytir þú beð hans í hvílurúm. 5Ég sagði: ,,Ver mér náðugur, Drottinn, lækna sál mína, því að ég hefi syndgað móti þér.`` 6Óvinir mínir biðja mér óbæna: ,,Hvenær skyldi hann deyja og nafn hans hverfa?`` 7Og ef einhver kemur til þess að vitja mín, talar hann tál. Hjarta hans safnar að sér illsku, hann fer út og lætur dæluna ganga. 8Allir hatursmenn mínir hvískra um mig, þeir hyggja á illt mér til handa: 9,,Hann er altekinn helsótt, hann er lagstur og rís eigi upp framar.`` 10Jafnvel sá er ég lifði í sátt við, sá er ég treysti, sá er etið hefir af mat mínum, lyftir hæl sínum í móti mér. 11En þú, Drottinn, ver mér náðugur og lát mig aftur rísa á fætur, að ég megi endurgjalda þeim. 12Af því veit ég, að þú hefir þóknun á mér, að óvinur minn hlakkar ekki yfir mér. 13Vegna sakleysis míns hélst þú mér uppi og lætur mig standa frammi fyrir augliti þínu að eilífu. _________ [ (Psalms 41:14) Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen. ]
Copyright information for Icelandic